Gögn segja meira en orð.
Ég myndi lýsa sjálfri mér sem gagnadrifnum einstakling. Skapandi hlið markaðssetningar er áhugaverð og bíður upp á mikla sérstöðu en árangurinn sjálfur mælist hinsvegar út frá tölum.
Á þessari síðu má ekki finna eitt sérstakt verkefni heldur ýmsar niðurstöður og áhersluatriði innan gagnasöfnunar og uppsetningu innan miðla.
Vinsamlegast hafið samband til þess að fá aðgang að birtingarskýrslum.
Ad Manager: Meta.
Meta einblínir á markaðssetningu innan eftirfarandi miðla:
Facebook
Instagram
Messenger
Innan Meta Ad Manager legg ég áherslu á að framlagt efni sé samræmt til þess að gögn sem ég dreg frá auglýsingum séu rétt og sýni raunverulegan árangur. Ég nýti mér einnig mikið A/B testing og retargeting sem að er mikilvægur þáttur í því að lækka kostnað og fá sem bestan árangur innan birtinga.
Ad Manager: Google.
Google einblínir á markaðssetningu innan eftirfarandi miðla:
Google
Static ads (t.d. á Vísir.is)
Smáforrit
Youtube
Í stuttu máli, alls staðar þar sem er í boði google aðgangur. Google Ad Manager er ekki mikið notaður á Íslandi utan Youtube vegna takmarkana hér á landi. Undanþága þess eru P-Max herferðir. P-max herferðir sameina alla miðla hér að ofan og hámarka birtingar með því að velja staðsetningar auglýsinga á mismunandi miðlum eftir neytanda.
Markaðstrektin.
Markaðstrektin stjórnar að miklu leyti hvaða efni lendir hvar og af hverju.
Af hverju skipta fylgjendur máli?
Það skiptir marga máli að ná ákveðinni stærð fylgjendahóps. Og já, upp að vissu marki skiptir það auðvitað máli. Ég er hinsvegar á þeirri skoðun að það séu talsvert fleiri tækifæri innan þess að efla og virkja núverandi fylgjendahóp í stað þess að elta nýja fylgjendur.
Línuritið hér fyrir neðan sýnir fylgjendahóp (grá lína) og heimasíðuheimsóknir (svört lína) út frá Instagram. Það er þriggja mánaða bil á milli hvers punkts. Fyrstu tveir mánuðurnir eru settir fram með það markmið að stækka fylgjendahóp. Á síðasta mánuðinum er búið að breyta áherslum og áhorfendahópi innan Meta til þess að einblína á núverandi fylgjendahóp.
Eins og má sjá þá bætir það ekki einungis árangur að hlúa að fylgjendum heldur skapar það einnig meiri áhuga á meðal notanda sem er ekki á meðal fylgjendahóps.
Mér finnst þetta gott dæmi um af hverju það skiptir máli að vera með puttann á púlsinum þegar kemur að því að rýna í gögn. Við fyrstu sýn gengur allt vel innan samfélagsmiðlanna. Birtingin er fín, fylgjendahópurinn vex en hvað meira? Það er mikilvægt að vita hvaða niðurstöðu þú vilt fá með því að stýra samfélagsmiðlum. Það er alltaf hægt að stíga inn, skipta út og prufa eitthvað nýtt.