Kjarnahæfni.

Hönnun, almannatengsl og skilvirk stefnumótun eru lykilatriði þess að ná árangri á mettuðum neytendamarkaði. Með heildrænni nálgun þessara greina aðstoða ég félög og vörumerki við að byggja upp sterka vörumerkjavitund og árangur.


Hönnun og auðkenni.

Ég hanna markaðsefni, auðkenni, teikningar, pakkningar eða hvað annað sem að vörumerkið þitt kann á að halda. Með víðtæka kunnáttu innan Creative Cloud, leturfræða og hönnunar ásamt þinni hugsjón og væntinga getum við átt frábært samstarf í átt að þinni mörkun.

Án sjónrænnar ímyndar er ekkert sem að tengir vörumerki eða þjónustu við fólk. Auðkennið þitt ætti að endurspegla og lyfta vörumerkinu þínu upp.

Stafræn markaðssetning.

Stafræn markaðssetning er ríkjandi á markaði í dag. Ég skipulegg og fylgi eftir auglýsingum sem að byggja á stefnumörkun og gagnasöfnun, með það að markmiði að hámarka sýnileika og árangur á netinu.

Þetta inniheldur meðal annars markaðssetningu innan Meta Ad Manager, Google Ad Manager (þar með talið uppsetning P-Max herferða) og HubSpot.

Markaðsherferðir.

Ég þróa og innleiði markaðsherferðir sem byggja á skýrum markmiðum, ítarlegri áætlanagerð og skapandi nálgun.

Sem dæmi um herferð má nefna “ekki þetta týpíska” herferðina hjá KILROY sem að jók sýnileika fyrirtækisins um 140% á meðal 18-24 ára samkvæmt Gallup rannsókn 2022-2023 og fylgjendahópi innan samfélagsmiðla um 1260%.

Markaðsherferðir eru fjölbreytt tól sem að bjóða upp á ótal möguleika og tengja fólk við vörur og þjónustu á áhrifaríkan hátt.

Auglýsingatexti (Copywriting).

Að skrifa markvissan og áhrifaríkan texta getur skipt sköpum. Það skiptir jafn miklu máli að geta skrifað texta í yfirbragði og blæ sem að hentar hverju verkefni fyrir sig.

Ég skrifa texta sem að ýtir þér upp innan leitarkerfa (SEO), hvetur fólk til þess að lesa tölvupóstinn í gegn og ýtir undir umbreytingastuðulinn þinn.

Gagnasöfnun & gagnagreining.

Með gagnasöfnun og greiningu veiti ég innsýn í sölu- og umbreytingatölur sem að styðja við KPI markmið og stefnumótun. Ég er gagnadrifin og legg áherslu á A/B prófun og ROI innan auglýsinga.

Gögn segja meira en orð - ég hjálpa þér að skilja hvað virkar, fyrir hvern og hvers vegna.

Efnissköpun (Content).

Ég þróa hnitmiðað og markvisst efni sem að styður við stefnumótun og mörkun. Þetta inniheldur greiddar auglýsingar, lífrænt efni og stuttmyndbönd.

Efnissköpun er sú hlið markaðssetningar sem á að vera skemmtileg, hún þarf ekki að vera alvarleg til þess að skila árangri. Ég hef skilið eftir nokkur dæmi um efnissköpun innan samfélagsmiðla undir hlekknum hér til hliðar.

Samfélagsmiðlastjórnun.

Ég stýri samfélagsmiðlareikningum líkt og Facebook, tikTok, Instagram, LinkedIn og Pinterest og legg áherslu á samkvæmni og virka þáttöku fylgjendahóps.

Ólíkt vinsælu sjónarmiði er ég yfirleitt ekki sammála því að það sé stærð fylgjendahópsins sem að skipti mestu máli, heldur hver umbreyting og virkni núverandi fylgjendahóps er.

Samfélagsmiðlar eiga að valda innblástri og veita notandanum eitthvað, hvort sem það eru upplýsingar, skemmtun eða fræðsla.

Vinsamlegast hafið samband fyrir birtingaskýrslur og Campaign uppsetningar.

UX & UI hönnun.

Heimasíðan þín er eitt mikilvægasta markaðstólið í verkfæratöskunni þinni. Ég hanna notendavænar lausnir sem einkennast af góðu flæði, aðgengi og sjónrænni virkni til þess að auka upplifun notenda.

UX og UI hönnunin getur bæði byggt á hönnun innan Figma sem að þú getur sent áfram til forritara með vinnslukerfi sem að hentar þínum þörfum eða heildarupplýsing innan einfaldari kerfa sem þú getur stýrt sjálf/ur/t líkt og Wix, Squarespace, Shopify og Wordpress.

Vinsamlegast hafið samband fyrir heimasíður og Figma hannanir.